Dóms­málaráðu­neyti Bandaríkjanna hefur sett sér það að mark­miði að upp­ræta um­fangs­miklar hluta­bréfa­blekkingar tengdar litlum kín­verskum fyrir­tækjum skráðum á Nas­daq.

Fjár­festar hafa tapað háum fjár­hæðum í kerfis­bundnum svikum þar sem hluta­bréfa­verð er hækkað með svik­sam­legum hætti og síðan selt til grun­lausra fjár­festa.

Fjöldi fjár­festa hefur orðið fyrir blekkingunum þar sem þeir eru hvattir, í gegnum sam­félags­miðla og skila­boða­for­rit á borð við What­sApp, til að kaupa hluta­bréf í lítt þekktum kín­verskum fyrir­tækjum sem eru skráð á Nas­daq.

Gengi hluta­bréfanna hækkar tíma­bundið vegna markaðsmis­notkunar en síðan hrynur verðið skyndi­lega með til­heyrandi tjóni.

Svindlið fer fram á sam­félags­miðlum

Svikin byggjast á því að óprúttnir aðilar, sem þykjast vera fjár­festingarráðgjafar, ná sam­bandi við ein­stak­linga og hvetja þá til að fjár­festa í ákveðnum félögum.

Félögin eru raun­veru­lega skráð en eru undir stjórn þeirra sem stunda svikin. Þeir eiga veru­legan hlut í félögunum sem þeir selja á upp­sprengdu verði til al­mennra fjár­festa.

Eitt þekktasta dæmið tengist kín­verska flutninga­fyrir­tækinu Jayud Global Logistics. Þar tapaði háskóla­kennari í Utah 80.000 Bandaríkja­dölum eftir að hluta­bréf félagsins féllu úr 8 dölum í innan við einn dollar á einum degi.

Honum, ásamt fjölda annarra, hafði verið lofað að félagið yrði tekið yfir af stærra flutninga­fyrir­tæki og að verðið myndi marg­faldast. Sam­bæri­legt mynstur hefur komið fram í tugum annarra mála.

Kerfis­bundin markaðs­misnotkun

Dóms­málaráðu­neytið hefur nú stofnað sér­stakan rannsóknar­hóp sem hefur það hlut­verk að finna og ákæra aðila sem standa að þessum svikum. Sam­kvæmt Matt­hew Galeotti, yfir­manni ákæru­sviðs ráðu­neytisins, er lögð áhersla á að draga svikarana til ábyrgðar og leitast við að endur­heimta fé fórnar­lamba.

Sam­kvæmt gögnum frá Fact­Set hafa nærri 60 kín­versk félög, sem öfluðu sér minna en 15 milljóna dala í frumút­boði, verið skráð á Nas­daq frá árinu 2020. Um þriðjungur þeirra hefur síðan orðið fyrir skyndi­legu gengis­hruni upp á 50 pró­sent eða meira á einum við­skipta­degi.

Financial Indus­try Regulatory Aut­ho­rity (Finra) gaf út viðvörun árið 2022 um að slíkar skráningar væru oft undan­fari blekkinga. Í mörgum til­vikum fara hluta­bréf ekki til al­mennra fjár­festa heldur til tengdra aðila sem síðar nýta sér verðhækkanir til að græða á kostnað annarra.

Í einu máli tengdu yfir­völd svik við kín­verska félagið China Liberal Edu­cation Holdings. Félagið safnaði tæp­lega 21 milljón dollara frá þrjátíu fjár­festum sem keyptu hluta­bréf á u.þ.b. 13 sent hvert. Síðar var hluti þeirra sakaður um að hafa stundað skipulögð markaðs­svik og svikið allt að 600 fjár­festa.

Sjö aðilar, fimm frá Malasíu og tveir frá Taí­van, voru ákærðir fyrir fjár­svik eftir að hafa selt meira en 50 milljónir hluta og hagnast um 480 milljónir dollara. Um 214 milljónir dollara voru síðar frystar af yfir­völdum í Chi­cago eftir að viðvörun barst frá verðbréfa­fyrir­tæki.

Brostið traust og veik staða eftir­lits

Fjár­festar sem hafa orðið fyrir tjóni hafa nú stofnað stuðnings­hópa. Einn slíkur, sem telur um 96 meðlimi, segir að tjón meðlima sé um 9 milljónir dala. Margir segjast hafa treyst því að sam­félags­miðlar eins og Face­book myndu hindra að svik af þessu tagi væru aug­lýst þar. Meta, móðurfélag Face­book, segir nú verið að þróa ný tæki, þar á meðal and­lits­greiningar­tækni, til að hindra slíka blekkingar­starf­semi.

Nas­daq hefur undan­farið hert skil­yrði fyrir skráningu félaga með lítið markaðsvirði og hraðað brott­vísun þeirra af markaðnum ef gengi hluta­bréfa fer undir einn dollar. Sam­kvæmt Nas­daq er mark­visst unnið með öðrum eftir­lits­stofnunum að því að sporna við markaðsmis­notkun.

Yfir­völd hafa ný­lega einnig beint sjónum að við­skiptum með hluta­bréf kín­versku félaganna Lixiang Edu­cation Holding og NetClass Technology, sem bæði hafa orðið fyrir mikilli gengis­röskun eftir skráningu.