Verð­bólga í Banda­ríkjunum er að hjaðna en sam­kvæmt ný­birtum tölum í gær mældist verð­bólga á árs­grund­velli um 3% í júní.

Fjár­festar tví­efldust í trú sinni um vaxta­lækkun í septem­ber og urðu tölu­verðar hreyfingar á markaði í gær.

Sam­kvæmt The Wall Street Journal var gríðar­leg velta með minni og meðal­stór fyrir­tæki og hækkaði Rus­sel 2000 vísi­talan um 3,6%, en vísi­talan hefur ekki hækkað jafn mikið á einum degi síðan í nóvember í fyrra.

Á sama tíma var tölu­verður sölu­þrýstingur á stóru tækni­fyrir­tækjunum. Markaðs­virði sjö stærstu tækni­fyrir­tækjanna lækkaði um 597,5 milljarða í gær sem sam­svarar um 82 þúsund milljörðum ís­lenskra króna.

Markaðs­virði tækni­fyrir­tækjanna hefur ekki lækkað jafn mikið á einum við­skipta­degi síðan í febrúar 2022, sam­kvæmt Dow Jones Market Data.

Hluta­bréfa­verð Nvidia lækkaði um 5,6% á meðan gengi Meta, móður­fé­lags Face­book, lækkaði um um 4,1%. Hluta­bréfa­verð Alp­habet, móður­fé­lags Goog­le, Amazon, App­le og Micros­oft, lækkaði um meira en 2%.

Gengi Tesla lækkaði síðan um 8,4% eftir að hafa hækkað 11 við­skipta­daga í röð. S&P 500 vísi­talan lækkaði um 0,9% á meðan Nas­daq vísi­talan, þar sem tækni­fyrir­tækin eru þunga­miðjan, féll um 2%.

Fjár­festar virðast vera að veðja stórt á að vaxta­lækkunin komi minni og meðal­stórum fyrir­tækjum vel en bilið milli hækkunar Rus­sel 2000 vísi­tölunnar og lækkunar á Nas­daq vísi­tölunni hefur ekki verið meira á einum við­skipta­degi síðan 1986.

Á­vöxtunar­krafa ríkis­skulda­bréfa til tíu ára fór úr 4,280% niður í 4,192% í gær.