TACO er skammstöfun sem hefur verið vinsæl vestanhafs að undanförnu en frasinn snýst um að Donald Trump lúffi alltaf (e. Trump always chickens out), einna helst þegar kemur að tollaáformum.

Forsetinn var spurður út í skammstöfunina á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í síðustu viku en hann sagði spurninguna „andstyggilega“ og þvertók fyrir það að hann hefði bakkað með sín áform. Engu að síður hefur Trump ítrekað hótað tollum en hætt við eða frestað þeim á síðustu stundu.

Fjárfestar hafa í auknum mæli veðjað á að Trump hætti við og hefur það borgað sig en S&P 500 vísitalan hækkaði hressilega í maímánuði og hefur ekki verið hærri síðan í nóvember 2023.

Ásakanir Trump fyrir helgi um að Kína hafi rofið tollasamkomulag við Bandaríkin og gagnásakanir Kína á mánudag um brot Bandaríkjanna á samkomulaginu gætu þó breytt stöðunni, auk þess sem úrskurðir dómstóla um lögmæti tolla Trump hafa skapað mikla óvissu.