Fjárfestingarfélagið Kaldbakur hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í hátæknifyrirtækinu Optimar International AS af þýska eignarhaldsfélaginu Franz Haniel & Cie. GmbH (Haniel).

„Optimar er leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á sjálfvirkum fiskvinnslukerfum til notkunar um borð í fiskiskipum, á landi og í fiskeldi,“ segir í tilkynningu Kaldbaks.

Optimar hefur höfuðstöðvar í Ålesund á vesturströnd Noregs en er einnig með starfsstöðvar á Spáni, í Rúmeníu og Bandaríkjunum. Optimar er með viðskiptavini í meira en 30 löndum.

Fram kemur að ekki séu fyrirhugaðar breytingar á rekstri Optimar sem mun áfram þjónusta viðskiptavini sína sem sjálfstætt fyrirtæki í samstæðu Kaldbaks.

Fjárfestingafélagið Kaldbakur ehf. er í eigu tveggja stofnenda Samherja hf. og fjölskyldna þeirra. Félagið segir að með fjárfestingu í Optimar leitist Kaldbakur við að styrkja stöðu sína sem fjárfestir í haftengdum iðnaði.

„Optimar er traustur þjónustuaðili við sjávarútveginn á heimsvísu. Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu, þekkingu og viðskiptasamböndum. Við erum spennt fyrir þeim tækifærum sem þessi fjárfesting mun skapa, bæði fyrir Optimar og fyrir önnur fyrirtæki í okkar eigu,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks.

Haniel festi kaup á Optimar á árinu 2017 og hefur frá þeim tíma stutt við þróun og uppbyggingu fyrirtækisins.

„Kaldbakur er fullkominn samstarfsaðili Optimar á þessum tímapunkti og hefur skuldbundið sig til að nýta sína reynslu og sérþekkingu til að styðja við frekari vöxt fyrirtækisins til framtíðar. Við óskum starfsfólki Kaldbaks og Optimar innilega til hamingju með að hafa innsiglað samstarfið,“ segir Thessa von Hülsen, fjárfestingastjóri í eignastýringu hjá Haniel.