Håkon André Berg, fyrrum forstjóri norska landeldisfyrirtækisins Salmon Evolution, hefur fjárfest í íslenska landeldisfyrirtækinu GeoSalmo og er nú meðal stærstu hluthafa félagsins.
Samhliða þessu tekur Håkon við stöðu starfandi stjórnarformanns hjá GeoSalmo. Sem starfandi stjórnarformaður mun Håkon vinna náið með stjórnendateymi GeoSalmo í áformaðri uppbyggingu hátæknilandeldis í Þorlákshöfn á næstu árum.
Håkon var forstjóri norska landeldisfyrirtækisins Salmon Evolution frá fyrstu skrefum þess og þar til eldisstöðin komst í fullan rekstur, að því er segir í fréttatilkynningu.
„Salmon Evoulution er stærsta landeldi Noregs og í fararbroddi í landeldi á laxi á heimsvísu. Auk þess að hafa yfigripsmikla þekkingu af landeldi hefur Håkon mikla reynslu úr norsku atvinnulífi, hefur starfað við fjárfestingar, viðskiptaþróun og ráðgjöf auk setu í stjórnum fyrirtækja. Håkon kemur til GeoSalmo úr starfi forstjóra Skeie teknologi sem er rótgróið fjárfestingarfyrirtæki í Noregi.“
„Ég er fullur tilklökkunar að taka við þessu lykilhlutverki hjá GeoSalmo. Ég mun leggja mig fram við að vinna náið með því frábæra teymi sem til staðar er hjá félaginu og að láta eitt metnaðarfyllsta landeldisverkefni heimsins í dag verða að veruleika. Öll útfærsla á landeldi GeoSalmo fellur vel að þeirri nálgun og gildum sem ég tel lykil að góðum árangri. Ég veit að félagið býr yfir því sem þarf til þess að ná stórhuga markmiðum sínum,“ er haft eftir Håkon André Berg.
„Við erum í skýjunum að fá Håkon til liðs við okkur, sem starfandi stjórnarformann og hluthafa. Håkon er með einstaka reynslu, m.a. eftir að hafa leitt uppbyggingu norska landeldisfyrirtækisins Salmon Evolution og gert að leiðandi fyrirtæki í greininni. Reynsla hans og tengslanet styrkir GeoSalmo verulega fyrir þá spennandi tíma sem framundan eru,“ Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo.