Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum, samkvæmt yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun er greitt.

Hins vegar er óvissa mikil í alþjóðamálum sem gæti reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins.

„Verðbólga og háir vextir hafa skapað áskoranir fyrir heimili og fyrirtæki en efnahagsreikningar þeirra eru þó almennt sterkir. Skuldahlutföll eru jafnframt lág í sögulegum og alþjóðlegum samanburði og vanskil lítil. Þá er sparnaðarstig heimila hátt, stutt af aðhaldi þjóðhagsvarúðar- og peningastefnu,” segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Að mati nefndarinnar mun verndarstefna í alþjóðaviðskiptum leiða til truflana á framboðskeðjum og aukins viðskipta- og framleiðslukostnaðar sem getur skekkt verðmyndun á mörkuðum og haft neikvæð áhrif á fjárfestingu og efnahagsumsvif.

Það gæti jafnframt leitt til snarps viðsnúnings til hins verra á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

„Hætt er við að áhrifin af slíkri framvindu næðu hingað til lands með beinum eða óbeinum hætti. Í þessu ljósi er mikilvægt að viðhalda viðnámsþrótti fjármálakerfisins sem meðal annars felst í sterkri eiginfjárstöðu innlendra lánastofnana.”

Rekstraráhætta fjármálainnviða er viðvarandi áskorun og brýnir fjármálastöðugleikanefnd fyrir rekstraraðilum mikilvægi viðbragðsáætlana um samfelldan rekstur þeirra.

Nefndin undirstrikar einnig mikilvægi þess að áfram sé unnið að því að auka rekstraröryggi í greiðslumiðlun og þar með að komið verði á fót innlendri óháðri greiðslulausn.

„Samhliða verði unnið að fleiri greiðsluleiðum til að auka viðnámsþrótt. Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.”