Um miðjan janúar ákvað Verðbréfaeftirlit Bandaríkjanna að veita starfsleyfi fyrir Bitcoin-kauphallarsjóði (e. ETF).
Gengi Bitcoin styrktist verulega og fór úr um 46 þúsund dölum í um 70 þúsund dali á þremur mánuðum.
Frá því leyfið var veitt hafa 11 Bitcoin-kauphallarsjóðir litið dagsins ljós og er sameiginlegt innflæði um 13,8 milljarðar Bandaríkjadala samkvæmt nýrri skýrslu Cerrulli Associates en Barrons greinir frá.

Í skýrslu Cerrulli kemur þó fram að nær ekkert af innflæðinu sé tilkomið vegna þess að fjármálaráðgjafar hafa mælt með kaupum í kauphallarsjóðunum.
Meira en 1.500 fjármálaráðgjafar voru spurðir hvort þeir hafi mælt með kaupum í sjóðunum og sögðu einungis 2,6% þeirra já.
Einungis 12,6% segjast hafa rætt um rafmyntir, Bitcoin og Kauphallarsjóðina við viðskiptavini sína en í nær öllum tilfellum áttu viðskiptavinirnir frumkvæðið að samtalinu.
Um 26% fjármálaráðgjafa sögðust ekki hafa rætt um rafmyntir við viðskiptavini sína en útilokuðu ekki að gera það í framtíðinni.
Samkvæmt Barrons sýnir skýrslan skýrt bil milli áhuga fjárfesta á rafmyntum og áhuga fjármálaráðgjafa.