N1 og Tesla hafa undirritað rammasamning sem felur í sér áform um uppbyggingu hraðhleðslustöðva við þjónustustöðvar N1 víðs vegar um landið. Markmið N1 með samningsgerðinni er að byggja upp víðfeðmt net hraðhleðslustöðva á næstu tveimur árum samhliða uppbyggingu Tesla.

Uppbygging verður við þjónustustöðvar N1 í Borgarnesi, Blönduósi, Egilsstöðum, Vík, Ísafirði, Hringbraut, Kirkjubæjarklaustur, Hveragerði, Keflavík og Ártúnshöfða.

Í tilkynningu segir að N1 muni setja upp níu nýja hraðhleðslugarða innan tveggja ára. Samtals eru því áform um nítján nýja hraðhleðslugarða og mun hraðhleðslustæðum við þjónustustöðvar N1 fjölga um meira en 150 á þessu tímabili.

„Ef við ætlum að ná raunverulegum árangri í orkuskiptum á Íslandi þá er eitt af lykilskrefunum að hraða uppbyggingu rafhleðslunets um land allt. Hleðslukvíði á ekki að vera hugtak sem aftrar einstaklingum og fyrirtækjum að veðja á nýjan orkumiðil,“ segir Ýmir Örn Finnbogason, framkvæmdastjóri N1.

Með fyrirhugaðri uppbyggingu vill N1 leitast við að tryggja aðgengi allra að öruggri rafhleðslu, óháð bíltegund, greiðsluleið og álagstoppum. Hraðhleðslustöðvar Tesla verða opnar öllum rafmagnsbílum.