Ís­lands­banki var mið­punktur hluta­bréfa­við­skipta í Kaup­höllinni í maímánuði og fór fram met­fjöldi við­skipta með bréf bankans. Alls voru skráð 5.123 við­skipti með bréf Ís­lands­banka á tíma­bilinu, sem nemur tæp­lega 40% allra við­skipta með einstök félög í mánuðinum.

Sam­kvæmt ný­birtu við­skipta­yfir­liti Nas­daq Iceland fyrir maí 2025 voru sam­tals 13.739 hluta­bréfa­við­skipti skráð á markaðnum, sem jafn­gildir 687 við­skiptum á dag að meðaltali. Fjöldinn jókst um 14,7% frá apríl og meira en tvöfaldaðist saman­borið við maí í fyrra.

Við­skipti með bréf Ís­lands­banka námu alls 121 milljarði króna í maí, sem er lang­mesta veltan með hluta­bréf eins félags í mánuðinum. Hafa ber í huga að ríkið af­henti hluta­bréf að and­virði 90,5 milljarða króna til al­mennings og fag­fjár­festa í mánuðinum.

Marksvirði jókst um 600 milljarða

Arion banki var með næstmestu veltuna sem nam 12 milljörðum króna í 1.259 viðskiptum.

Kvika banki fylgdi þar á eftir með veltu upp á 9,8 milljarða og samtals 746 viðskipti með bréf félagsins.

Velta með bréf Alvotech nam 6,2 milljörðum í mánuðinum.

Í lok maí voru 33 félög skráð á Aðal­markað og Nas­daq First North-vaxtar­markaðinn á Ís­landi. Saman­lagt markaðsvirði þeirra nam 2.648 milljörðum króna, saman­borið við 2.020 milljarða í apríl.

Úr­vals­vísi­talan OMXI15 hækkaði um 10,7% í maí og stóð í 2.703 stigum við lok mánaðarins. Heildar­vísi­talan OMXIPI hækkaði um 13,3% og fór í 2.248 stig.

Heildar­velta með hluta­bréf í maí nam 184 milljörðum króna eða 9.207 milljónum á dag – 161% meira en í apríl og 180% aukning frá sama mánuði í fyrra.

Á skulda­bréfa­markaði var Ís­lands­banki með 25,8% markaðs­hlut­deild í veltu. Þar á eftir komu Arion banki með 19,4% og Lands­bankinn með 19,38%.

Heildar­við­skipti með skulda­bréf námu 167,3 milljörðum króna í maí, sem er svipað og í apríl, en um 16% meira en í sama mánuði í fyrra.

Verð­tryggðar og óverð­tryggðar vísitölur hækkuðu lítil­lega og aðal­vísi­tala skulda­bréfa (NOMXIBB) fór upp um 0,3%.