Fjármálaráðuneytið hefur falið fjórum sérfræðingum að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.
Verkefni hópsins verður að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils samanborið við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði eins og evrusvæðinu. Skýrslunni verður skilað á fyrri hluta næsta árs og er ætlað að skapa umræðuvettvang um gjaldmiðlamál Íslands, að því er segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.
Hópurinn verður leiddur af Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingi OECD, sem situr í peningastefnunefnd seðlabanka Englands.
Aðrir í starfshópnum eru Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við háskólann í Osló og Stijn Claessens fyrrum aðstoðarframkvæmdarstjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans (BIS) sem er nú með stöðu við Yale-háskóla.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram eigi síðar en árið 2027.