Fjórtán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði þann 29. mars næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en þrjátíu verkefni af öllu landinu sóttu um þátttöku í ár.

Kjarnastarfsemi Norðanáttar snýr að svokölluðum FEW-nexus eða matur- orka- vatn. Verkefnim sem taka þátt snerta öll á þessum áherslum með einum eða öðrum hætti, að því er segir í tilkynningu.

Verkefnin sem munu taka þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru:

Bambahús - Úr drasli í nasl. (VF)

Biopol - Ocean Gold. (N)

EONE ehf. - e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)

Frostþurrkun ehf. - Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum. (S)

Gefn - Nýsköpun í grænni efnafræði (H)

GeoSilica Iceland - GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð.

GreenBytes - Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)

Gull úr Grasi - Tryggjum fóður og fæðuöryggi. (N)

IceWind - Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum. (H)

Kaja Organic - Jurtamjólkur verksmiðja. (V)

Melta - Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði. (S)

Skógarplöntur ehf. - Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt. (N)

Vínland Vínekran - Vínrækt, víngerð, veitingarstaður og vínmeðferða Spa. (S)

YGG - Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum. (A)

(N) Norðurland / (S) Suðurland / (H) Höfuðborgarsvæði / (VF) Vestfirðir / (V) Vesturland / (R) Reykjanes / (A) Austurland

Í valnefnd sátu Sigurður Markússon, forstöðumaður nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, meðstofnandi og eigandi Iceland Innovation Week, Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri viðskipta- og vöruþróunar hjá Íslenskum Verðbréfum, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóra nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brimi og Kolfinna Kristínardóttir, verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic Startups.

Að verkefninu Norðanátt standa, Eimur, SSNE, SSNV, RATA og Hraðið Húsavík með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Hópurinn vinnur í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins sem hraðar framþróun og nýsköpun.