Alls bárust 14 umsóknir um embætti ferðamálastjóra, en staðan var auglýst þann 21. október síðastliðinn og umsóknarfrestur rann út þann 10. nóvember. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Skarphéðinn Berg Steinarsson tilkynnti þann 20. október að hann hafi ákveðið að láta störfum sem ferðamálastjóri um næstu áramót eða við lok skipunartíma síns. Honum hafi boðist að halda áfram en ákveðið að láta staðar numið. Skarphéðinn tók við embættinu í ársbyrjun 2018 og var þá skipaður til fimm ára.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. janúar næstkomandi. Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af henni mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.
Umsækjendur um stöðu ferðamálastjóra:
- Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri
- Böðvar Þórisson, skrifstofustjóri
- Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri
- Georg H. Ómarsson, markaðsstjóri
- Guðrún Indriðadóttir, framkvæmdastjóri
- Helgi Héðinsson, framkvæmdastjóri
- Hildur Kristjánsdóttir, sérfræðingur
- Inga Hlín Pálsdóttir, ráðgjafi
- Ólafur Reynir Guðmundsson, verkefnastjóri
- Saga Hlíf Birgisdóttir, ferðamálafræðingur
- Sigurður Erlingsson, viðskiptafræðingur
- Valdimar Björnsson, framkvæmdastjóri
- Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri