Kínverski rafbílaframleiðandinn BYD hefur á undanförnum mánuðum hægt á framleiðslu í nokkrum verksmiðjum sínum í Kína og hafa sömuleiðis frestað byggingu nýrra verksmiðja í landinu.

Að sögn Reuters eru ákvarðanir fyrirtækisins merki um að sá mikli söluvöxtur sem BYD hefur séð undanfarin tvö ár gæti verið að hægja á sér.

Þrátt fyrir að hafa tekið fram úr Tesla í sölu glímir BYD við fjölmörg birgðavandamál og hefur neyðst til að bjóða upp á miklar verðlækkanir á kínverskum bílamarkaði sem er stjórnaður af ótrúlega harðri samkeppni.

BYD hefur þá aflýst næturvöktum og minnkað framleiðslugetu um allt að þriðjung í fjórum verksmiðjum. Hlutabréf BYD, sem skráð er í Hong Kong, lækkuðu um rúmlega 1% í viðskiptum í dag eftir fréttaflutning Reuters.

Kínverski rafbílaframleiðandinn seldi 4,27 milljónir bíla á síðasta ári og var meirihluti þeirra seldur í Kína. Félagið er með sjö bílaverksmiðjur í landinu og stefnir á 30% söluaukningu í 5,5 milljónir bíla á þessu ári.

Fjölmargir kínverskir bílaframleiðendur hafa nú leitað til annarra markaða í von um að halda uppi sölu en á fyrstu fimm mánuðum þessa árs voru 20% af öllum þeim 1,76 milljónum rafbíla sem BYD framleiddi fluttir úr landi.