Flosi Eiríksson, viðskiptafræðingur, ráðgjafi hjá Aton.JL og fyrrum framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, er að íhuga framboð til formanns VR. Hann staðfestir þetta í samtali við Viðskiptablaðið.
„Það er búið að tala við mig, og ég hef talað við fólk og ég er verulega að hugsa það að bjóða mig fram.”
Flosi hefur mikla reynslu af bæði stjórnsýslu og félagsmálum en hann sat í bæjarstjórn Kópavogs í 12 ár og var einnig formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. Þá starfaði hann í áratug hjá KPMG í fyrirtækjaráðgjöf og sem verkefnastjóri í viðskiptaþróun og tengslum.
„Framboðsfrestur rennur út á mánudaginn þannig ég tek endanlega ákvörðun í dag eða á morgun en ég held að ég hafi margt fram að færa í að leiða þetta stóra og öfluga stéttarfélag,“ segir Flosi.