Flugtæknifyrirtækið Honeywell hefur hannað nýtt viðvörunarkerfi fyrir stjórnklefa flugvéla sem mun hjálpa flugmönnum að forðast hættulegar aðstæður. Kerfið, sem gefur frá sér munnlegar viðvaranir, er þegar í notkun hjá flugfélaginu Southwest Airlines.
Á vef WSJ segir að innleiðing viðvörunarkerfisins hafi komið eftir fjölda uppákoma á bandarískum flugvöllum þar sem litlu mátti muna um alvarleg slys.
Andrew Watterson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Southwest Airlines, segir þetta vera öflugt tól til að koma í veg fyrir slys. Flugfélagið hefur þegar komið kerfinu fyrir í nær allar af þeim 800 flugvélum í flugflota Southwest.
Viðvörunarkerfið virkar með svipuðum hætti og viðvörunarkerfi í bílum sem skynja bíla á blindsvæðum ökumanns eða þegar bíllinn er settur í bakkgír. Kerfið mun þá sjálfkrafa vara flugmenn við nærliggjandi hættum í stað þess að reiða á flugumferðastjóra til að grípa inn í.
Icelandair notast við svipað kerfi
Guðmundur Tómas Sigurðsson, flugrekstrarstjóri Icelandair, segir í samtali við Viðskiptablaðið að svipað kerfi sé þegar um borð í öllum flugvélum Icelandair. Kerfið sem Icelandair notast við kallast RAAS (e. Runway Awareness and Advisory System).
„Þetta er ekki það sama og Southwest notar en er mjög sambærilegt kerfi sem er hannað til að auka öryggi. Flugfélög hafa þann valmöguleika að kaupa þetta þegar verið er að kaupa nýja flugvél en við keyptum það í allar Boeing 737-vélarnar okkar og erum líka með sambærilegan búnað í Airbus-vélarnar.“
Hann segir að sum flugfélög, eins og Southwest Airlines og Ryanair, leggi mikla áherslu á að hafa flugvélarnar sem líkastar hver annarri. Stærri flugfélög, sem reka hundruð eða þúsundir flugvéla, séu þá gjarnan treg til að innleiða nýjar breytingar.
„Boeing hefur oft verið gagnrýnt fyrir að hafa ekki gert meiri breytingar á 737-vélinni miðað við að hún fór fyrst á markað árið 1967. Ástæðan fyrir því var hins vegar út af þessum stóru kúnnum. Það var vitað mál að ef Boeing myndi gera of margar breytingar þá myndu félög eins og Southwest sleppa því að kaupa flugvélarnar. Bara einn dagur í þjálfun fyrir flugmann, þegar þú ert með 800 flugvélar, getur kostað félagið hundruð milljónir króna.“