United Airlines hóf í dag árstíðarbundið beint flug milli Keflavíkurflugvallar og heimahafnar sinnar í New York/Newark. Flugfélagið bauð áður upp á þessa flugleið á árunum 2018-2022 en gerði hlé á fluginu sumarið 2023.
Flugið bætist nú aftur við flug félagsins milli Keflavíkurflugvallar og heimahafnar á O‘Hare-flugvelli í Chicago.
„Það er mikið ánægjuefni fyrir okkur á Keflavíkurflugvelli að United Airlines skuli á ný bjóða upp á flug milli Keflavíkur og New York/Newark. Sú ákvörðun að hefja á ný flug sýnir hve mikið traust United Airlines hefur á Íslandi sem áfangastað,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar á Keflavíkurflugvelli.
United Airlines flýgur milli áfangastaðanna á Boeing 757-200 flugvélum. Flug milli Keflavíkurflugvallar og New York/Newark hófst í dag og stendur til loka október. Flug félagsins milli Keflavíkurflugvallar og O´Hare-flugvallar í Chicago hófst 10. maí síðastliðinn og stendur til 25. september.
„Það gleður okkur að hefja að nýju beint flug milli Íslands og New York/Newark í fyrsta sinn síðan 2022. Þetta eru góðar fréttir fyrir viðskipavini okkar sem fljúga frá Íslandi, þar sem þetta býður upp á enn fleiri ferðavalkosti, beina tengingu við bæði New York og Chicago, sem og möguleika á tengiflugi til 114 áfangastaða í Norður- og Suður-Ameríku í gegnum heimahafnir okkar í Bandaríkjunum,“ segir Amit Badiani, yfirmaður sölusviðs United Airlines.