Play hefur undirritað viljayfirlýsingu við meðalstórt alþjóðlegt flugfélag - með flota sem inniheldur 70 flugvélar og sinnir áætlunar- og leiguflugi til 90 áfangastaða í 30 löndum - um nokkurra ára samstarfssamning sem myndi m.a. fela í sér útleigu á flugvélum.

Umrætt flugfélag hefur lýst yfir áhuga á að kaupa allt að 49% hlut í Fly Play Europe, dótturfélagi Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu.

Þetta kemur í fjárfestakynningu yfirtökuhóps, sem leiddur er af Einari Erni Ólafssyni forstjóra flugfélagsins og Elíasi Skúla Skúlasyni varaformanni stjórnar.

Hópurinn segir að Play gæti með orðið aðlaðandi yfirtökukostur innan flugleigubransans þar sem nokkuð hafi verið um samþjöppun. Tíu véla Airbus floti Play gæti þannig verið álitinn verðmæt eign á markaðnum.

Skila inn flugrekstrarleyfinu – sex vélar í útleigu

Áform yfirtökuhópsins fela í sér að Play skili inn íslenska flugrekstrarleyfi sínu og fljúgi aðeins undir maltnesku flugrekstrarleyfi sem félagið tryggði sér í mars.

Í tilkynningu yfirtökuhópsins kemur fram að hópurinn sjái fyrir sér að fjórar flugvélar Play muni sinna flugi til og frá Íslandi, einkum til sólarlanda. Hinar sex vélarnar í flotanum verði leigðar í arðbær verkefni til annarra flugrekenda.

Play tilkynnti fyrr í ár að það hefði tryggt sér langtímasamning um ACMI-leigu á fjórum farþegaþotum við SkyUp Malta til ársloka 2027. Félagið segist eiga í viðræðum við nokkra mótaðila um leigu á tveimur þotum til viðbótar.

Yfirtökuhópurinn vill leggja aukna áherslu á skrifstofur félagsins í Möltu og Litháen. Tekið er þó fram að Play áhafnir verði áfram frá Íslandi og starfi eftir íslenskum kjarasamningum.

Hópurinn segir að yfirtökufélagið, sem hluthöfum Play er boðið að fá hlut í, verði fjármagnað með að lágmarki 20 miljóna dollara fjárframlagi, eða sem nemur um 2,5 milljörðum króna. Af þeirri fjárhæð sé þegar skuldbinding fyrir rúmlega þriðjungi fjárhæðarinnar.

Mynd úr fjárfestakynningu yfirtökuhópsins.
Mynd úr fjárfestakynningu yfirtökuhópsins.

Vilja stofna flaggskipsflugfélag í Kósovó

Í téðri fjárfestakynningu kemur fram að félagið sjái tækifæri í Kósovó þar sem Play eigi í viðræðum við rótgróna flugrekstraraðila með yfir 30 ára reynslu á markaðnum.

Áformin fela í sér að setja á fót flugfélag (e. virtual airline) í samstarfi við þrjá af stærstu ferðaheildsölum landsins. Umrætt flugfélag yrði flaggskipsflugfélag Kósovó.

Fram kemur að umræddir þrír samstarfsaðilar séu með samanlagða 54% markaðshlutdeild á Pristina International Airport, eina alþjóðlega flugvelli Kosóvó. Tæplega 4 milljónir farþega hafi farið um völlinn í fyrra sem samsvari um helming af stærð markaðarins sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll. Pristina sé hraðast vaxandi flugvöllurinn í gömlu Júgóslavíu.