Ikechi Chima Apakama, 32 ára Breti, er milljónasti farþegi Play, en hann flaug frá Liverpool til Íslands nú í morgunsárið. Apakama var komið á óvart með flugmiða sem gerir honum kleift að fljúga frítt með Play eins mikið og hann vill, út ævina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.
Apakama ferðaðist til Íslands ásamt tveimur félögum sínum og var tilgangur ferðarinnar keppni í amerískum fótbolta við Einherja, eina starfandi íþróttafélagið í amerískum fótbolta á Íslandi.
Þeir félagar voru sóttir á flugvöllinn á glæsilegum og glænýjum Cadillac Escalade. Á leiðinni til Reykjavíkur var nafn Apakama á stóru auglýsingaskilti þar sem hann er boðin velkominn til Íslands.
„Ég vil nýta tækifærið og þakka hverjum og einum farþega sem hefur valið að fljúga með Play frá því við hófum starfsemi í júlí árið 2021. Að við höfum nú flogið einni milljón farþega er risastór áfangi. Ég efast ekki um að þetta sé stór dagur fyrir Apakama en þetta er enn stærri dagur fyrir okkur hjá PLAY,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.
![](http://vb.overcastcdn.com/images/121916.width-1160.jpg)
![](http://vb.overcastcdn.com/images/121917.width-1160.jpg)