Í tilkynningu frá Vodafone segir að fyrirtækið bjóði nú nú öllum sem standa í flutningum fría nettengingu. Hin svokallaða innflutningsgjöf frá Vodafone er 5G háhraðanet og virkar í 60 daga án endurgjalds.

„Það getur verið mjög mikill álagstími að standa í flutningum og að mörgu að huga. Margir eru jafnvel með húsnæði á fleiri en einum stað á meðan standsetning og flutningar standa yfir. Við hjá Vodafone viljum einfalda fólkinu lífið á þessum tímamótum og bjóðum því fólki að fá hjá okkur frítt 5G net á meðan það kemur sér fyrir á nýja staðnum,“ segir Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone.

Í tilkynningu segir jafnframt að innflutningsgjöfin sé í boði fyrir alla, óháð búsetu og sé ekki bundin við viðskiptavini Vodafone.

„Háhraðanettenging er mikilvæg fyrir samskipti og miðlun og viljum við tryggja að fólk sé vel tengt á öllum stöðum í flutningsferlinu án auka kostnaðar, hvort sem þú ert að flytja að heiman í þína fyrstu íbúð, að bíða eftir uppsetningu á ljósleiðaraneti eða þarft tímabundið net á tvo staði.“ segir Sesselía jafnframt.