Íslenska samfélagsmiðlastofan Fomo Media hefur hafið starfsemi og sett í loftið nýjan vef með það að markmiði að hjálpa fyrirtækjum að skerpa á stafrænni nærveru sinni og nýta áhrifamátt notendaskapaðs efnis (e. user generated content, UGC).
Að fyrirtækinu standa Camilla Rut Arnarsdóttir, samfélagsmiðlasérfræðingur og efnisskapari, og hugbúnaðarfyrirtækið Aranja, sem sér um stafræna innviði og tæknilega þróun lausna.
Samkvæmt fréttatilkynningu leggur fyrirtækið sérstaka áherslu á að styðja fyrirtæki við að byggja upp raunveruleg tengsl á samfélagsmiðlum – með markvissri stefnumótun og sköpun á persónulegu og áhrifaríku efni.
„Við sjáum aftur og aftur að það eru einfaldlega þau fyrirtæki sem ná að tala beint til fólks með góðum sýnileika og skapandi efni sem skera sig úr. Fomo Media er hér til að hjálpa fyrirtækjum að gera það,“ segir Camilla Rut, meðstofnandi.
Fomo Media býður alhliða þjónustu í samfélagsmiðlum, þar sem megináherslan er lögð á framleiðslu á UGC, efni sem hefur sýnt sig hafa miklu meiri áhrif á fylgjendur og viðskiptavini en hefðbundnar auglýsingar. Umsjón samfélagsmiðla, skipulagningu, textaskrif, birtingaráætlun og efnisgerð fyrir miðla eins og Instagram og TikTok.
Herferða- og auglýsingastjórnun sem felur í sér stýringu á Meta-herferðum (Facebook og Instagram) með skýrum markmiðum og mælanlegum árangri. Þá er einnig boðið upp á ráðgjöf og stefnumótun sem fylgir fræðsla, greining og þróun stefnu í takt við sérstöðu og raddir mismunandi vörumerkja.
Sérstaða fyrirtækisins felst í því að það nýtir reynslu Camillu af samfélagsmiðlavinnu með fjölbreyttum fyrirtækjum og tengir saman við tæknilega þekkingu Aranja, sem m.a. sér um vefumsjón og hugbúnaðargerð.
Fomo Media á ekki rætur sínar aðeins í sköpun heldur líka í stafrænni tækni. Aranja, sem hefur áður unnið með Camillu að samfélagsmiðlaverkefnum fyrir eigin dótturfélög, er bæði meðstofnandi og bakhjarl verkefnisins.
Uppbygging Fomo Media hefur verið unnin í góðu samstarfi við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Aranja sem styður við stafræna innviði og vefinn sem nú er kominn í loftið. Aranja hefur einnig komið að ráðgjöf og þróun hugmynda á fyrstu stigum.
„Við hjá Aranja höfum séð frá fyrstu hendi hvernig notendaskapað efni á eigin miðlum fyrirtækja nær betur til notenda. Camilla Rut hefur séð um samfélagsmiðlamál fyrir okkur og dótturfélög okkar með góðum árangri. Það er því ánægjulegt að taka næsta skref með henni og skapa sérstakan vettvang Fomo Media til að tengja fyrirtæki við hæfileikaríka efnisskapara,” segir Sævar Már, framkvæmdastjóri Aranja.