Þýska fyrirtækið Heinemann tók við rekstri Fríhafnarinnar, dótturfyrirtækis Isavia, fyrr í mánuðinum og mun samkvæmt samningi sinna rekstrinum á Keflavíkurflugvelli næstu átta ár. Líkt og þegar Fríhöfnin sá um reksturinn er m.a. áfengi selt beint til neytenda í verslunum Heinemann, sem er einkarekið fyrirtæki.
Sala áfengis í fríhafnarverslunum hefur verið heimiluð til fjölda ára en hún felur í sér undantekningu frá þeirri meginreglu að ÁTVR hafi einkarétt á smásölu áfengis. Hingað til hefur aftur á móti verið um að ræða fyrirtæki í eigu opinbers fyrirtækis. Þá var breyting gerð á áfengislögum árið 2022 þannig að brugghús gátu byrjað að selja áfengi á framleiðslustað.
Þannig hafa tvær tegundir einkaaðila heimild til að selja áfengi til neytenda eins og staðan er í dag en engu að síður hafa stjórnvöld haldið einokun ÁTVR til streitu.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Viðreisnar, greindi frá því í svari við fyrirspurn á Alþingi fyrir skemmstu að ekki væru áform um að leggja ÁTVR niður. Miðað við stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins má ætla að ekki standi til að einkavæða ÁTVR heldur.
Elías Blöndal Guðjónsson, einn eigenda Sante, sem heldur úti vefverslun með áfengi, segir þessa afstöðu ráðherra skjóta skökku við, ekki síst vegna yfirlýstrar stefnu Viðreisnar um að ríkið eigi ekki að starfa á smásölumarkaði.
Í könnun Viðskiptablaðsins í haust kom fram að fjórir af fimm þingmönnum flokksins voru hlynntir því að heimila innlendum einkaaðilum að stunda smásölu áfengis á netinu og voru ekki ánægðir með núverandi fyrirkomulag með einkaleyfi ÁTVR.
„Stefna Viðreisnar um aukið frelsi í verslun með áfengi og yfirlýsingar þingmanna flokksins gefa skýrt til kynna að tími reksturs ríkisverslana með áfengi sé að renna sitt skeið. Þegar einkaaðilar reka nú þegar bæði brugghús og fríhöfn sem selja áfengi beint til neytenda, er ljóst að einokunin er í raun þegar afnumin,“ segir Elías.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.