Það stefnir í æsispennandi úrslitaumferð forsetakosninga í Póllandi á morgun, 1. júní. Frambjóðendurnir Rafał Trzaskowski og Karol Nawrocki standa nánast hnífjafnir í könnunum með 47% fylgi hvor.

Trzaskowski er borgarstjóri Varsjár og er helst lýst sem frjálslyndum Evrópusinna. Hann er frambjóðandi Borgaravettvangs (Platforma Obywatelska) og nýtur stuðnings forsætisráðherrans Donalds Tusk.

Tusk hefur jafnframt tekið virkan þátt í kosningabaráttu Trzaskowski, en skiptar skoðanir eru á því hvort það hjálpi þeim síðarnefnda í baráttunni. Tusk hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir vangoldin loforð fráfarandi ríkisstjórnar, meðal annars í málefnum fóstureyðinga og hinsegin fólks.

Sagnfræðingurinn Nawrocki er frambjóðandi íhaldsflokksins Lög og réttlæti (PiS). Hann hefur haldið sterkri stöðu meðal eldri kjósenda, þrátt fyrir ásakanir um umdeild fasteignaviðskipti.

Báðir keppast þeir nú um fylgi kjósenda sem studdu öfga-hægri flokkinn Confederation í fyrri umferð kosninganna, þar sem leiðtogi flokksins, Sławomir Mentzen, hlaut 14,8% atkvæða.

Þess má geta að í fyrstu umferð kosninganna, sem haldin var 18. maí sl., hlaut Trzaskowski 31,3% atkvæða og Nawrocki 29,5% atkvæða.