Þátt­taka í út­boði ríkisins á hluta­bréfum í Ís­lands­banka var gríðar­leg en alls fengu 31.000 ein­staklingar út­hlutun í til­boðs­bók A þar sem 86,9 milljarðar króna af 90,6 milljarða heildarsölu and­virðis gengu kaupum og sölum.

Há­marks­út­hlutun í bók A var 19.999.927 krónur og engin skerðing var gerð á til­boðum al­mennings í þeirri bók.

Ný­birt gögn frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytinu sýna að meðal kaup­enda voru fjölmargir for­stjórar skráðra félaga í Kaup­höll Ís­lands og nokkrir fengu há­marks­út­hlutun.

For­stjórarnir sem keyptu mest

Alls fengu fjórir há­marks­út­hlutun, 19.999.927 krónur, en þeir voru Finnur Odds­son for­stjóri Haga, Ægir Páll Friðberts­son for­stjóri ISI, Árni Sigurðs­son, að­stoðar­for­stjóri JBT Marel, og Andri Þór Guð­munds­son for­stjóri Öl­gerðarinnar.

Þar á eftir kom Jón Þór Gunnars­son, for­stjóri Kaldalóns, sem keypti fyrir 14.999.918 krónur.

Her­mann Björns­son, for­stjóri Sjóvár, keypti fyrir 3.999.836 krónur og Hreiðar Már Her­manns­son, for­stjóri Eikar fast­eignafélags, keypti fyrir 3.196.800 krónur.

Vil­helm Már Þor­steins­son, for­stjóri Eim­skips, fékk út­hlutað fyrir 2.499.898 krónum á meðan Ásta Sigríður Fjeld­sted, for­stjóri Festi, og Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair Group, fengu bæði út­hlutað fyrir 1.999.918 krónum.

María Björk Einars­dóttir, for­stjóri Símans, keypti fyrir sömu upp­hæð á meðan Her­dís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar, keypti fyrir 999.959 krónur.

Alls fengu 1.529 ein­staklingar há­marks­út­hlutun í bók A í út­boðinu en líkt og Við­skipta­blaðið hefur fjallað um var nokkuð um að efna­meiri ein­staklingar hefðu safnað kenni­tölum í út­boðinu og reynt þannig að tryggja sér stærri hlut á af­slætti.