Tilkynnt var í gærkvöldi að Luca de Meo hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri franska bílaframleiðandans Renault. Fjölmiðlar greindu í gær frá því að hann væri að taka við forstjórastöðunni hjá Kering, móðurfélagi Gucci.
Hlutabréfaverð Renault hefur fallið um ríflega 6% í fyrstu viðskiptum eftir opnun markaða í dag.
Í umfjöllun Reuters segir að De Meo hafi tekist að snúa við rekstri Renault á fimm ára forstjóratíð sinni, m.a. með því að marka skýrari stefnu þegar kemur að nánu samstarfi franska félagsins við Nissan. Jafnframt hafi hann lagt aukna áherslu á hybrid-vélar samhliða því að færa franska bílaframleiðandann í átt að rafvæðingu.
Gengi hlutabréfa Kering, sem hefur ekki staðfest ráðningu De Meo, hefur hækkað um 10% frá opnun markaða í morgun.
De Meo myndi taka þar við stjórnartaumunum af Francois-Henri Pinault sem gegnt stöðu forstjóra frá árinu 2005.
