DSV, næst stærsta fyrirtæki Danmerkur, glímir nú við krefjandi umfjöllun um harðan stjórnunarstíl forstjórans Jens Lund sem hefur stýrt félaginu frá því í febrúar 2024.

Viðskiptamiðillinn Børsen greindi í gær frá því að Lund hafi reglulega farið yfir mörk starfsmanna.

Umfjöllunin byggir á samskiptum við fjórtán ónafngreinda núverandi og fyrrverandi starfsmenn DSV, sem starfar að flutningsmiðlun um allan heim, en þar af hafa flestir starfað í æðstu stjórnendastöðum innan félagsins.

Fjórir þeirra segja Lund helstu ástæðuna fyrir að þeir ákváðu að yfirgefa félagið eftir að hafa starfað hjá því í áratugi.

Viðmælendurnir lýstu atvikum þar sem Lund missti stjórn á skapi sínu, öskraði á starfsmenn, sló í borð og veggi, og niðurlægði fólk fyrir framan samstarfsfélaga sína.

„Allir eru hræddir við Jens Lund. Þetta er klikkað,“ er haft eftir fyrrverandi stjórnanda hjá DSV. Annar viðmælandi sagði óþægindi fylgja hverju samtali við Lund og bætti við að hann óski ekki sínum versta óvini að starfa með forstjóranum.

Einn þeirra segist hafa punktað niður 30-40 atvik þar sem Lund húðskammaði starfsmenn. Tveir heimildarmenn minntust þess að á einum fundi hafi Lund hellt sér yfir starfsmann á fundi fyrir að líta á glósurnar sínar fremur en að horfa beint í augu forstjórans.

Þess má þó geta að Børsen ræddi einnig fyrir þrjá fyrrverandi starfsmenn sem segjast ekki kannast við þá mynd sem aðrir viðmælendur drógu upp.

Gul og rauð spjöld í vikulegum „Stasi-skýrslum“

Í morgun greindi viðskiptamiðillinn frá því að Lund sendi á hverjum mánudegi tölvupóst á hóp tuttugu stjórnenda DSV þar sem hann greinir frammistöðu einstakra deilda. Þær deildir sem hann telur ekki vera að standa sig eru harðlega gagnrýndar í umræddum tölvupóstum.

Fyrrverandi stjórnarmaður lýsir því að Lund hafi gjarnan talað um að fólk ætti að fá gul eða rauð spjöld í sameiginlegum skilaboðum til starfsmanna.

Annar viðmælandi segir það vera lítt skemmtilegt að vera getið í vikulegu tölvupóstum. Forstjórinn nefni einstaka stjórnendur, oft með texta á borð við „við munu sjá hvort þeir verði hérna áfram í næstu viku“.

Nokkrir viðmælendur lýsa ánægju með nálgun fyrirtækisins að setja upp frammistöðutengda mælikvarða og stuðla að samkeppni milli deilda. Hins vegar eru þau ósátt við notkun Lund á umræddum gögnum. Þessir tölvupóstar eru gjarnan kallaðir „Stasi-skýrslur“ innan fyrirtækisins.

Lund rýfur þögnina

Jens Lund vildi ekki tjá sig um málið við Børsen. Eftir að umfjöllunin byrjaði að vinda upp á sig – þar sem lífeyrissjóður í hluthafahópnum og nokkrir sérfræðingar í stjórnunarfræðum gagnrýndu stjórnunarhætti innan DSV – sendi Lund viðskiptamiðlinum skriflegt svar.

Þar segist hann vera mjög beinskeyttur í samskiptum við æðstu stjórnendur, bæði um það sem vel gengur og það sem betur má fara.

„Ég skil að sumum kunni að finnast þetta óþægilegt. Það er svo sannarlega ekki mitt markmið og eitthvað sem ég tek fulla ábyrgð á og vinn að því að breyta.“

Lund segist jafnframt ávallt hafa verið staðráðinn í að ná fram því besta úr DSV og setji því miklar kröfur á sjálfan sig og aðrar stjórnendur.

„Ég geri þetta þar sem ég veit hvað við getum afrekað þegar við löggum okkur öll fram sem lið,“ skrifar Lund.

Lund rauf þögnina um stjórnunartilburði sína í dag.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Luku yfirtöku á 85 þúsund manna fyrirtæki í vor

Í umfjölluninni segir að óvæginn stíll Lund, sem þykir skarpur á sviði fjármála, hafi reynst mikilvægur fyrir rekstrarárangur DSV. Bent er á að hlutabréfaverð félagsins hafi hækkað um meira en 7.700 prósent frá því að hann hóf störf sem fjármálastjóri árið 2002.

Stjórnunarhættir hans hafi þó orðið til þess að hópur lykilstarfsmanna forðast að ræða við hann og reyna eftir megni að andmæla honum ekki, samkvæmt heimildarmönnum Børsen. Þeir segja að aðstæðurnar hafi aðeins versnað eftir að hann var ráðinn forstjóri í fyrra.

Gagnrýnin kemur um svipað leyti og Lund vinnur nú að því að samþætta starfsemi þýska félagsins Schenker, sem DSV keypti fyrir 14 milljarða evra í vor, við samstæðuna. Yfir 85 þúsund manns starfa hjá Schenker, sem sérhæfir sig í vörustjórnun.

„Gulllituð handjárn“ komi í veg fyrir uppsagnir

Meira en 2 þúsund starfsmenn hjá DSV eiga aðild að kaupréttaráætlun félagsins. Nokkrir viðmælendur lýstu hvatakerfinu sem „gulllituðum handjárnum“ sem hafi stuðlað að því að nokkrir lykilstarfsmenn sem hafi starfað hjá félaginu í mörg ár hafi orðið mjög auðugir.

Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá félaginu segist telja að gulllituðu handjárnin geri það að verkum að sumir stjórnendur láti meira yfir sig ganga en skynsamlegt sé að gera með tilliti til geðheilsu.