Vinnslustöðin hf. (VNV) tapaði 3,5 milljónum evra, eða um hálfum milljarði króna, einkum vegna loðnubrests. Er þetta í annað skipti á síðustu 25 árum sem félagið er rekið með tapi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fyrirtækisins.
Guðmundur Arnar Gunnarssonar, stjórnarformaður VNV, sagði á aðalfundi útgerðarfélagsins í gær að verði boðaðar hækkanir ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum að veruleika muni Vinnslustöðin ekki geta fjárfest eins og gert hafi verið á undanförnum árum.
„Tími er kominn til að endurnýja verulega skipakost félagsins og liggja fyrir teikningar af nýjum þriggja og fjögurra mílna bátum. Smíði 3ja mílna togbáta hafði verið boðin út og verðtilboð höfðu borist. Skipin voru hönnuð með sama hætti og Breki, með stórri og hæggengri skrúfu sem myndi minnka kolefnisspor útgerðar okkar til muna,“ sagði Guðmundur Örn.
„Stefnt var að því að semja um smíði skipanna á haustdögum, eða í kjölfar þess að við sæjum fram á loðnukvóta á næsta ári. Þessum áformum hefur nú verið slegið á frest vegna stefnu stjórnvalda um að liðlega tvöfalda veiðigjöld.”

Bókfærðar heildareignir Vinnslustöðvarinnar námu 422 milljónum evra, eða jafngildi 61 milljarðs króna. Þar af voru heildarskuldir og skuldbindingar félagsins tæpir 44 milljarðar króna.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, aðallega í nýbyggingu botnfiskvinnslu, jukust verulega milli áranna 2023 og 2024 eða um 19,4 milljónir evra, jafnvirði 2,9 milljarða króna. Samþykkt var á fundinum að ekki yrði greiddur arður til hluthafa í ár.
Velta samstæðunnar var 177 milljónir evra, eða jafnvirði liðlega 26 milljarða króna.
„Stærsti áhrifaþáttur taprekstrar í fyrra var loðnubrestur. Því miður varð raunin sú aftur í ár. Það er mikið áhyggjuefni fyrir félagið, og um leið allt samfélagið, hve lítið er vitað um loðnu, hegðun hennar og samspil vistkerfis hafsins,“ segir í tilkynningunni.