Frítekjumark námsmanna hækkar um 43% og fer úr 930.000 króna á ári í 1.330.000 krónur samkvæmt nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2019/2020. Hækkun þessi kemur til móts við óskir námsmanna sem bent hafa á að frítekjumarkið hafi ekki verið hækkað í takt við verðlagsbreytingar og launahækkanir síðan árið 2014. Mennta- og menningarmálaráðuneytið greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Jafnframt segir að í farvatninu sé umfangsmikil kerfisbreyting á fyrirkomulagi Lánasjóðs íslenskra námsmanna en ráðgert sé að nýtt frumvarp um sjóðinn verði lagt fram á Alþingi í haust. Breytingarnar felist meðal annars í því að námsstyrkur ríkisins verði gagnsærri og meira jafnræði verði meðal námsmanna og muni nýju kerfi þannig svipa meira til norrænna námsstyrkjakerfa. Stefnt er að því að nýtt stuðningskerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.

Námsaðstoðin sem sjóðurinn muni veita verði áfram í formi lána á hagstæðum kjörum og til viðbótar verði beinar styrkjagreiðslur vegna framfærslu barna og 30% niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma. Stefnt sé að því að bæta fjárhagsstöðu nemenda, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og hvetja nemendur til að klára nám sitt á tilsettum tíma. Í því felist ávinningur fyrir námsmenn sem og þjóðhagslegur ávinningur fyrir samfélagið allt sem útreikningar geri ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 milljörðum króna á ári.