Töluverður söluþrýstingur var á hlutabréfamarkaði í Frakklandi í morgun eftir ákvörðun Emmanuel Macron Frakklandsforseta að slíta þingi og blása til kosninga.
Macron tilkynnti þingslitin í gærkvöldi eftir stórsigur Þjóðfundarins (RN), stjórnmálaflokks Marine Le Pen í Evrópuþingkosningunum um helgina. RN fékk 30 þingsæti á meðan flokkur Macrons, BE, fékk 13 þingsæti.

Nýkjörinn leiðtogi Þjóðfundarins, Jordan Bardella, skoraði á Macron að boða til þingkosninga í ljósi úrslitanna. Sagði hann skilaboð frönsku þjóðarinnar skýr og varð Macron við ósk hans.
Franska úrvalsvísitalan Cac 40 opnaði um 2,4% lægri í morgun sé miðað við dagslokagengi föstudagsins. Úrvalsvísitalan hefur fallið úr um 8.000 niður í 7850 stig.
Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan í febrúar en hlutabréf í frönsku bönkunum eru að hafa mikil áhrif á vísitöluna.
„Skjóta fyrst hugsa síðar stemming“
Hlutabréfaverð BNP Paribas hefur lækkað um 5,4% í viðskiptum dagsins, hlutabréfaverð Société Générale hefur lækkað um 8% á meðan gengi Crédit Agricole hefur lækkað um 4,5%
„Það var skjóta fyrst hugsa síðar stemming á mörkuðum í morgun,“ segir Emmanuel Cau, yfirmaður Evrópudeildar Barclays banka, í samtali við Financial Times.
Ávöxtunarkrafa franskra ríkisskuldabréfa til 10 ára hækkaði um 0,08% og stendur í 3,18%. Krafan hefur ekki verið jafn há síðan í nóvember í fyrra.