Á hverju ári spretta upp ný fyrirtæki, en aðeins sum þeirra ná að festa sig í sessi og hafa raunveruleg áhrif. Árið 1994 var stofnár fjölda fyrirtækja sem síðar áttu eftir að umbreyta heilu atvinnugreinunum. Hér eru fjögur erlend fyrirtæki sem hafa haft umtalsverð áhrif: Amazon, Yahoo!, Netscape og Craigslist.
Úr bóksölu í tæknirisa
Jeff Bezos stofnaði netbókaverslunina Amazon árið 1994 í bílskúr í Seattle. Bezos varði öllu sínu eigin fé í stofnun fyrirtækisins og fékk lán frá foreldrum sínum til að koma versluninni af stað. Með tímanum breikkaði vöruúrval Amazon og varð að stærstu netverslunarsíðu heims.
Í dag starfar Amazon á ótal mörgum mörkuðum. Það hefur skapað sér sérstöðu á heimsendingarmarkaði með drónum og býður upp á allt sem hugurinn girnist á vefsíðu sinni, allt frá heimilistækjum og matvörum í forsmíðuð einingarhús.
Fyrirtækið er umfangsmikið á sviði skýjaþjónustu með Amazon Web Services sem skilar félaginu um 17% af tekjum og 58% af rekstrarhagnaði. Þá hefur streymisþjónustan Amazon Prime haslað sér völl og er nú með næststærstu markaðshlutdeildina á þeim markaði á eftir Netflix.
Amazon hefur einnig komið sér inn á hefðbundinn smásölumarkað með snertilausu verslunum Amazon Go og kaupunum á Whole Foods árið 2017. Þá nýtir félagið nýjustu tækni gervigreindar með þjónustu sinni í gegnum AWS og talgervilinn Alexa.
Lengi vel var fyrirtækið rekið með tapi og þegar netbólan sprakk um síðustu aldamót voru efasemdaraddirnar háværar. Félagið komst í gegnum storminn undir styrkri stjórn Jeffs Bezos en á síðasta rekstrarári námu tekjur Amazon 638 milljörðum Bandaríkjadala og hagnaðurinn 59 milljörðum dala.
Bezos lét af störfum sem forstjóri árið 2021 en er enn stærsti hluthafi félagsins og sinnir formennsku í stjórn félagsins.

Skin og skúrir
Yahoo! var stofnað af Jerry Yang og David Filo árið 1994 sem voru þá námsmenn við Stanford háskóla. Upphaflega var Yahoo! einföld leitarvél á netinu, sambærileg Google, en þróaðist hratt í vinsæla vefgátt og var skráð á markað árið 1996.

© AFP (AFP)
Félagið fór í gegnum sveiflur næsta áratuginn, bæði í kringum netbóluna og uppgang Facebook og Google. Bandaríska símafyrirtækið Verizon festi kaup á öllum internet-rekstri Yahoo! árið 2017 á 4,48 milljarða dala og var Yahoo og AOL, dótturfyrirtæki Verizon, sameinað í fjölmiðlafyrirtækið Oath sem síðar fékk nafnið Verizon Media Group.
Fjórum árum síðar, árið 2021, keypti bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Apollo 90% hlut í Yahoo á fimm milljarða dala. Verizon á enn 10% hlut í félaginu.
Í dag býður Yahoo! upp á fjölbreytta vefþjónustu, þar á meðal Yahoo Finance, Yahoo Sports og Yahoo Weather, ásamt því að veita stafræna auglýsingaþjónustu.

Fyrsti vinsæli vafrinn
Netscape Communications Corporation var stofnað af þeim Marc Andreessen og Jim Clark árið 1994. Netscape var þekkt fyrir að þróa fyrsta vinsæla vafrann, Netscape Navigator, sem spilaði stóra rullu í útbreiðslu internetsins til almennings og var með um 90% markaðshlutdeild um miðjan tíunda áratuginn.

© ASSOCIATED PRESS (ASSOCIATED PRESS)
Skjótt skipaðist veður í lofti með harðri samkeppni frá Microsoft sem gaf út vafrann Internet Explorer, og árið 2006 var Netscape-vafrinn kominn með innan við 1% markaðshlutdeild.
Netscape var keypt af AOL árið 1999 í flóknum viðskiptum þar sem alls 10 milljarðar dala skiptu um hendur. Skömmu áður en gengið var frá kaupunum aflétti Netscape höfundarrétti af undirliggjandi kóða vafrans og var Mozilla Firefox vafrinn seinna meir byggður á þeim grunni.
Undir merkjum AOL hélt þróun á Netscape-vafranum áfram þar til henni var hætt árið 2007. Nú er nafn Netscape notað á afsláttar netþjónustu AOL.

Einfaldleikinn uppmálaður
Þótt Craigslist hafi formlega verið sett á laggirnar árið 1995 var hugmyndin komin af stað árið 1994, þegar Craig Newmark, stofnandi Craigslist, sendi einfalda póstlista til vina og vandamanna þar sem hann benti þeim á viðburði á San Fransisco Bay svæðinu.
Fljótt þróaðist vefsíðan í að verða ein vinsælasta smáauglýsingavefsíða heims. Craigslist býður notendum upp á að setja inn auglýsingar í fjölmörgum flokkum, allt frá símum, tölvum og heimilistækjum, í húsnæði, störf, ýmsa þjónustu og viðburði. Hér heima mætti helst líkja Craigslist við bland.is.
Í dag er Craigslist ein mest sótta vefsíða í heimi og er aðgengileg í sjötíu löndum. Það sem er einna áhugaverðast við vefsíðuna er að hún hefur lítið breyst á síðustu þrjátíu árum og líklega erfitt að finna aðra vefsíðu í dag sem er eins einföld og gamaldags í hönnun.

Umfjöllunin birtist fyrst í 30 ára afmælistímariti Viðskiptablaðsins.