Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík hefur gert samning við skipasmíðastöðina Armon í Gijón á Spáni um smíði á 58 metra löngum og 13,6 metra breiðum ísfisktogara. Ráðgert er að smíðinni ljúki á fyrri hluta ársins 2024. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að um sé að ræða fyrstu nýsmíði sem Þorbjörn hafi ráðist í síðan 1967, en á undanförnum 50 árum hafi fjölmörg fiskiskip komið við sögu félagsins ýmist við sameiningar við önnur útgerðarfyrirtæki eða við bein kaup. Fyrirtækið hafi staðið fyrir meiriháttar endurnýjun og breytingum á eldri skipum og breytt  þeim úr t.d. uppsjávarveiðiskipum yfir í línuskip og ísfisktogurum yfir í frystiskip.

„Undanfarin ár hefur Þorbjörn hf. tekið úr rekstri þrjú línuskip og tvo frystitogara en í staðinn hefur fyrirtækið keypt frystitogara frá Grænlandi og ísfisktogara frá Vestmannaeyjum. Nú heldur Þorbjörn hf. áfram endurnýjun skipaflota fyrirtækisins og væntanlega verða enn nokkrar breytingar á núverandi útgerð þó að það hafi ekki enn verið ákveðið,“ segir í fréttatilkynningu.

Nýja skipið er hannað af Sævari Birgissyni, skipatæknifræðingi hjá Verkfræðistofunni Skipasýn, í nánu samstarfi við starfsmenn Þorbjarnar. Liðsinnti Sævar starfsmönnum Þorbjarnar við samningsgerðina á Spáni.

Nánari útlistun á hönnun skipsins má lesa hér að neðan:

„Við hönnun skipsins hefur verið lögð rík áhersla á að draga úr orkunotkun og þar með að umhverfisáhrif þess verði sem minnst.  Aðalvél skipsins sem verður um 2400 KW. mun knýja skrúfu sem verður 5 metrar í þvermál.  Stærð og snúningshraði skrúfunnar verður lægri en áður hefur þekkst í eldri fiskiskipum af sambærilegri stærð.   Skipið verður þess vegna sérlega sparneytið og því í hópi sparneytnustu skipa í þessum flokki.  Þá verður skipið búið til veiða með tveimur botnvörpum samtímis og togvindurnar knúnar rafmagni.

Í hönnun skipsins er sérstaklega litið til sjóhæfni þess með tilliti til öryggis og bættrar vinnuaðstöðu. Áhersla er lögð á að aðbúnaður áhafnar verði sem bestur og allir skipverjar hafa sínar eigin vistarverur og hreinlætisaðstöðu.

Gert er ráð fyrir því við hönnun skipsins að auðvelt verði að breyta því í frystitogara ef það hentaði á einhverjum tíma skipsins.

Mesta breytingin frá eldri skipum Þorbjarnar hf. varðandi vinnslu og meðferð aflans er sú að sjálfvirk flokkun á aflanum fer fram á vinnsludekki skipsins og frágangur aflans í fiskikör fer fram á einum stað á vinnsludekkinu.  Þaðan fer aflinn í lyftum niður í lest og verður lestarvinnunni  eingöngu sinnt af fjarstýrðum lyftara sem rennur á loftbita í lest skipsins.  Auk þess að annast flutning og stöflun á fiskikörum verður lyftarinn notaður við losun skipsins þegar það kemur til hafnar.“