Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið NeckCare hélt nýverið alþjóðlega ráðstefnu um framfarir í endurhæfingu á hálsi (e. Advancing Neck Rehabilitation). Ráðstefnan var sú fyrsta sinnar tegundar og komu sérfræðingar saman til að deila reynslu og rannsóknum.

NeckCare er nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðistækni sem stofnað var árið 2017 og byggir á rannsóknum sem ná aftur til ársins 2003.

Helstu sérfræðingar heims á sviði rannsókna og meðferða á hálsmeiðslum og heilahristingi mættu til að halda fyrirlestra, þar á meðal fulltrúar frá háskólum og stofnunum á borð við Duke University, University at Buffalo, Columbia University og UFC Performance Institute.

Lykiláskoranir í meðferð við hálsvandamálum voru til umfjöllunar, þar á meðal skortur á stöðluðum mælingum og skalanlegum meðferðarúrræðum. Lausn NeckCare var nefnd sem framsækin tækni sem þegar er notuð af aðilum sem sérhæfa sig í meðferð hálsmeiðsla í Bandaríkjunum og Kanada.

„Okkar meginmarkmið er að vinna að framþróun í meðferð hálsvandamála með nýjum tæknilausnum og fræðslu. Háls- og bakverkir eru með algengustu og kostnaðarsömustu heilsufarsvandamálum í Bandaríkjunum og fela í sér gífurlegt tækifæri fyrir nýjar lausnir á borð við okkar. Við höfum séð mikla aukningu í fjölda viðskiptavina og notkun á vörunni síðustu 12 mánuði,“ segir Orri Guðmundsson, framkvæmdastjóri NeckCare.

Í tilkynningu segir jafnframt að NeckCare hafi nýlega hafið samstarf við UFC Performance Institute með það markmið að þróa staðlaðar mælingar og þjálfunarkerfi fyrir bardagaíþróttafólk með hálsáverka og eftirköst heilahristings.

Heather Linden, forstöðumaður sjúkraþjálfunar hjá UFC Performance Institute í Las Vegas, Mexíkó og Sjanghæ, var ein þeirra sem töluðu á ráðstefnu NeckCare hér á landi.

„Það var mikill heiður að fá að taka þátt í þessari ráðstefnu, umkringd færustu sérfræðingum um þessi málefni víðs vegar að úr heiminum. Þekkingin, þverfaglegt samstarf og nýsköpun í greiningu og meðferð á hálsmeiðslum og heilahristingi var til fyrirmyndar. NeckCare er í fararbroddi þessarar þróunar,“ sagði Heather í færslu eftir ráðstefnuna.