Félag atvinnurekenda og Viska – stéttarfélag undirrituðu í dag nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. nóvember 2024 til 1. febrúar 2028. Samningurinn er í öllum meginatriðum í samræmi við aðra samninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði í yfirstandandi kjaralotu.
Félagsfólk Visku er að mestu háskólamenntaðir sérfræðingar og félagið er stærsta aðildarfélag BHM.
Með þessum samningi verður til fyrsti kjarasamningurinn fyrir félagsfólk Visku sem starfar hjá aðildarfélögum FA en um leið er hann nýr valkostur fyrir háskólamenntaða sérfræðinga á þeim vettvangi. Kjarasamningurinn er jafnframt sá fyrsti sem FA gerir við aðildarfélag BHM.
„Hjá félagsmönnum FA starfar nú umtalsverður hópur félagsmanna í Visku. Með gerð kjarasamnings milli félaganna eru réttindi þessa hóps betur tryggð, sem er sameiginlegt hagsmuna- og metnaðarmál þeirra atvinnurekenda og launþega, sem eiga í hlut,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Viska varð til um síðustu áramót með sameiningu nokkurra stéttarfélaga. Félagið byggir á norrænni fyrirmynd þar sem lögð er áhersla á samtal, samvinnu og aukna þjónustu við félagsfólk. Á næstunni verður haldið áfram að bæta við þjónustuframboð Visku og félagið verður kynnt sérstaklega fyrir aðildarfélögum FA.
„Nú geta sérfræðingar á almenna markaðnum valið úr fleiri stéttarfélögum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við FA og sjáum fjölmörg tækifæri í því að efla þjónustu við sérfræðinga á almennum vinnumarkaði,“ segir Kristmundur Þór Ólafsson varaformaður Visku.