Húsasmiðjan hefur tekið í notkun fyrsta fjölnota rafmagnsflutningabílinn á Íslandi sem er sérútbúinn fyrir flutning á byggingarefni. Bíllinn er bæði sá fyrsti hér á landi og er jafnframt einn sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum með fyrrnefndum rafmagnskrana.
Rafmagnsflutningabíllinn er af gerðinni Volvo FE og er fjölnota vörubíll sem gengur fyrir rafmagni.
Reiknað er með að rafvörubíllinn keyri um 2.600 km á mánuði að jafnaði og sparast því rúmlega 3 tonn koltvísýringsígilda (CO2í) eða 37 tonn á ári. Í tilkynningu segir að kraninn sé einnig knúinn rafmagni sem kemur í veg fyrir staðbundna mengun á verkstað.
„Með þessum nýja flutningabíl tökum við stórt skref í orkuskiptum. Við munum meðal annars leggja áherslu á að bjóða þeim aðilum sem eru í umhverfisvottuðum byggingaframkvæmdum upp á þennan valkost þ.e. að fá byggingarefnið flutt með enn lægra kolefnisspori á verkstað,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.