Samkvæmt tilkynningu frá Laxey hefur fyrsti skammturinn af laxi verið fluttur úr stórseiðahúsi Laxeyjar í Vestmannaeyjum yfir í nýju fiskeldiskerin. Félagið segir þetta marka mikil tímamót í áframeldi og sé stórt skref í átt að varanlegum og stöðugum rekstri.
Kerin eru 28 metrar í þvermál og 13 metrar á hæð og rúma samtals 5.000 rúmmetra af sjó, sem dælt er upp úr borholum.
„Fyrsti áfangi í sex skrefa uppbyggingu Laxey er nú að ljúka og undirbúningur næsta áfanga þegar hafinn. Í hverjum áfanga verða reist og starfrækt átta slík fiskeldisker. Þegar uppbyggingu lýkur verður árleg framleiðslugeta fyrirtækisins allt að 42.000 tonn af laxi,“ segir í tilkynningu.

Starfsemin hófst með byggingu seiðastöðvar í Friðarhöfn, þar sem notast er við lokað RAS-kerfi sem endurnýtir vatnið að mestu leyti. Stöðin, sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, fór í fulla starfsemi í ágúst á síðasta ári.
Fyrsti skammturinn af seiðum var svo fluttur í stórseiðahúsið í nóvember síðastliðnum og annar skammtur fylgdi í apríl. Núverandi skammtur sem fór í kerin hefur þegar náð 1.200 grömmum að meðalþyngd.
„Framkvæmdir við uppbygginguna hafa gengið samkvæmt áætlun, samhliða ræktun lífmassa. Áætlað er að fyrsta slátrun fari fram haustið 2025 og undirbúningur fyrir sláturhús, sem staðsett verður í Viðlagafjöru, er nú þegar hafinn.“