Evrópsk hótel hafa höfðað hópmálsókn gegn bókunarvefsíðunni Booking.com vegna ofgreiddra þóknunargjalda og gætu hugsanlega endað á því að fá fleiri milljarða evra endurgreiddar.
Málsóknin hófst í Hollandi, þar sem Booking.com er með höfuðstöðvar sínar, af hollenskri stofnun sem kallast Stichting Hotel Claim Alliance. Stofnunin er rekin af teymi hagfræðinga og samkeppnislögfræðinga.
Málið á sér rætur að rekja til úrskurðar Evrópudómstóls sem var gefinn út í september í fyrra en það mál sneri að deilu milli Booking.com og 63 þýskra hótela um jafnréttisákvæði í samningnum milli vefsíðunnar og hótelrekenda.
Þegar Booking.com kom fyrst til Þýskalands árið 2006 setti fyrirtækið inn ákvæði í skilmála sína fyrir hóteleigendur sem bannaði þeim að bjóða lægri verð en þau sem voru í boði á Booking.com.
Hópmálsóknin er jafnframt studd af evrópsku hótelsamtökunum Hotrec, sem heldur því einnig fram að Evrópudómstóllinn hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði Booking.com bryti gegn samkeppnislögum ESB.
„Evrópsk hótel hafa lengi þurft að glíma við ósanngjarnar aðstæður og okurverð. Nú er kominn tími til að standa saman og leita úrbóta. Þessi sameiginlega aðgerð sendir einnig þau skilaboð að við horfum ekki fram hjá misnotkun á stafrænum markaði,“ segir Alexandros Vassilikos, forseti Hotrec.