Fjallað er um hið nýstofnaða Innviðafélag Íslands, fyrsta sérhæfða lánsfjármögnunarsjóðinn fyrir innviði hér á landi, í Viðskiptablaði vikunnar. Fjármögnun á sjóðnum, sem er í rekstri REC Sjóða, rekstraraðila sérhæfðra sjóða í eigu Arcur ehf. lauk á dögunum.
Sjóðurinn er með heimild fyrir framkvæmdafjármögnun og getur því komið að innviðaverkefnum frá upphafi þeirra. Sigurður Kristinn Egilsson, framkvæmdastjóri Innviðafélags Íslands, telur mikilvægt í ljósi stærðar umræddra verkefna að lífeyrissjóðir geti komið að fjármögnun þeirra á fyrstu stigum.
Hann bætir við að Innviðafélagið geti einnig komið að fjármögnun verkefna til lengri tíma og þar geti samstarfsvettvangurinn komið að góðum notum.
„Samstarfsvettvangurinn getur þannig komið að fjölbreyttum verkefnum, hvort sem það er í formi verðtryggðra langtímafjármögnunar eða framkvæmdafjármögnunar. Þetta fyrirkomulag gerir okkur kleift að taka þátt í margs konar útfærslum innviðaverkefna og þannig kæmi t.d. ekkert í veg fyrir aðkomu okkar að stórum verkefnum á borð við Sundabraut.“
Innviðir í víðum skilningi
Spurður um hvaða verkefni samstarfsvettvangur Innviðafélagsins horfi til, svarar Sigurður Kristinn að horft sé til innviða í víðu samhengi og horft m.a. til flokkunar Samtaka iðnaðarins sem mátu nýlega innviðaskuld hér á landi á 680 milljarða króna.
Innviðafélagið horfi því ekki aðeins til samgönguinnviða, heldur einnig m.a til vatns- , frá- og hitaveitna, flugvalla, raforkuflutnings og dreifingar, hafna, fjarskipta, virkjana sem og skóla, sjúkrahúsa og leikvanga.
Innviðafélag Íslands er fyrsti sjóðurinn í rekstri REC sjóða, rekstraraðila sérhæfðra sjóða í eigu ráðgjafarfyrirtækisins Arcur ehf. Það hefur m.a. aðstoðað við fjármögnun ýmissa verkefna sem ríkið er með aðild að, t.d. nýleg 6,5 milljarða fjármögnun húsnæðis sem ríkið er með langtímaleigusamning við.
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um Innviðafélag Íslands í Viðskiptablaði vikunnar.