Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), gerir 8,7% hækkun á gjaldskrá Lyfjastofnunar um áramótin að umfjöllunarefni í aðsendri grein sem birtist á Vísi í dag. Hann segir ríkisstofnunina telja sig vera undanþegna þegar kemur að því að mynda sátt um kjarasamninga með því að halda af sér við breytingar á gjaldskrám.

Hann segir að 8,7% gjaldskrárhækkun Lyfjastofnunar vera langt umfram það sem teljist ásættanlegt í viðræðum aðila vinnumarkaðarins um nýjan kjarasamning.

„Kostnaður við rekstur Lyfjastofnunar er að verulegu leyti borin uppi af lyfjafyrirtækjunum, en gjaldskrá stofnunarinnar er mikil að vöxtum. Allar breytingar á gjaldskrá stofnunarinnar hafa því áhrif á lyfjaverð á Íslandi með beinum eða óbeinum hætti,“ segir Andrés.

85 manns starfa hjá Lyfjastofnun

Mikilvægasta verkefnið í yfirstandandi kjaraviðræðum sé að ná tökum á mikilli verðbólgu og því háa vaxtastigi sem af henni leiðir. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld séu sammála um þetta markmið.

„Ef þetta markmið á að nást þurfa allir að spila með, ekki síst opinberir aðilar. Af þeirri ástæðu verður að gera kröfu um að opinberar stofnanir haldi aftur af sér við breytingar á gjaldskrám sínum og styðji þar með markmið kjarasamninga,“ skrifar Andrés og bætir við að opinberir aðilar virðist finna mjög til ábyrgðar í þessum efnum ef marka má viðbrögð forsvarsmanna ríkis og sveitarfélaga.

„Það er a.m.k. ein ríkisstofnun sem finnst hún undanþegin því að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni, en það er Lyfjastofnun.“

Hlutverk Lyfjastofnunar er m.a. að hafa eftirlit með starfsemi lyfjafyrirtækja, bæði á smásölu- og heildsölumarkaði. Andrés bendir á að samkvæmt upplýsingum á heimasíðu stofnunarinnar starfi þar „rúmlega 85 manns“.

„Ef víðtæk sátt á að nást í baráttunni gegn verðbólgu og háum vöxtum verða allir að leggja sitt af mörkum – einnig Lyfjastofnun.“