Fyrirtækið Myrkvun ehf. var stofnað í ársbyrjun 2024 og var fyrst rekið úr bílskúr af Bjarna Degi Svanssyni, stofnanda fyrirtækisins. Myrkvun sérhæfir sig í sölu á Blindscreen-gardínum sem þekja glugga alfarið á björtum sumardögum.
Myrkvun selur gardínurnar, sem koma frá Bretlandi, bæði til einstaklinga og fyrirtækja en hefur nú fært starfsemi sína úr bílskúrnum í sameiginlegan sýningarsal á Smiðjuvegi 9 í Kópavogi.
Bjarni Dagur Svansson, stofnandi og meðeigandi Myrkvunar, segir í samtali við Viðskiptablaðið að fyrirtækið hafi byrjað sem aukaverkefni sem hann sinnti eftir vinnu fyrir örfáum árum.
„Árið 2023 sá ég þessa vöru á netinu og sótti um umboð. Ég byrjaði svo að sinna þessu eftir vinnu þegar ég vann sem sölumaður hjá Símanum. Ég fór líka til Bretlands og lærði að setja þetta upp og svo fór þetta á fullt í apríl 2024.“
Bjarni segir að umfangið hafi fljótlega verið svo mikið að hann ákvað að fá pabba sinn, Svan Kristjánsson, með sér í fyrirtækið.
„Á sumrin eru um 85% af öllum viðskiptavinum okkar nýbakaðir foreldrar.“
„Ég setti svo inn auglýsingu á TikTok en það myndband fékk í kringum 65 þúsund áhorf og þá bárust inn hátt í 300 fyrirspurnir. Ég var þá líka að keyra um allt höfuðborgarsvæðið að kynna vörurnar.“
Myrkvun selur gardínurnar til bæði einstaklinga og fyrirtækja en Bjarni segir að hann sé líka í miklu samstarfi við hótel. „Svo á sumrin eru um 85% af öllum viðskiptavinum okkar nýbakaðir foreldrar sem vilja fá þetta fyrir barnaherbergin fyrir litlu börnin sín.“
Bjarni segir að gardínurnar séu einnig auglýstar sem orkusparnaðarlausn í Bretlandi þar sem þær hafa mjög hátt einangrunargildi. Þær stöðva bæði hitann frá sólinni sem skín á gluggann ásamt því að verja herbergin gegn kulda á veturna.
„Við bjóðum fólki að setja gardínurnar upp fyrir það en viðskiptavinir geta líka sett þær upp sjálfir. Svo munum við bráðum byrja með okkar eigin framleiðslu á venjulegum rúllugardínum.“