Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi fimmtudaginn 20. mars um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Vatneyri í Patreksfirði. Þetta kemur fram á síðu MAST en gatið uppgötvaðist við reglubundið neðansjávareftirlit og var viðgerð lokið samdægurs.

Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 50 x 25 cm rifa á 20 metra dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 117.133 laxar með meðalþyngd u.þ.b. 3 kg.

Í tilkynningu segir jafnframt að neðansjávareftirlit hafi síðast verið framkvæmt 23. febrúar sl. og var nótarpoki þá heill.

„Matvælastofnun fyrirskipaði að kafað yrði í allar eldiskvíar á eldissvæðinu til að ganga úr skugga um að sambærileg göt væru ekki til staðar í öðrum eldiskvíum. Auk þess fyrirskipaði stofnunin að kafað yrði undir þessa tilteknu eldiskví í leit að mögulegum stroklax. Lögð voru út net í grennd við eldiskví í samráði við Fiskistofu til að fanga mögulegan stroklax. Enginn lax veiddist í net eða sáust við köfun undir kví,“ segir á síðu MAST.

Matvælastofnun segist hafa málið til rannsóknar og rannsakar m.a. hvort Arnarlax hafi virkjað og farið eftir eigin verklagsreglum og viðbragðsáætlunum. Þegar rannsókn lýkur á atburðinum verður gefin út eftirlitsskýrsla um rannsóknina og hún birt á mælaborði fiskeldis á heimasíðu Matvælastofnunar.