Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hagnaðist um 3,3 milljarða dala á þriðja ársfjórðungi.
Til samanburðar hagnaðist félagið um 2,4 milljarða dala á sama tíma í fyrra og jókst hagnaðurinn því um 37% milli ára. Velta félagsins jókst talsvert á milli ára, fór úr 26,8 milljörðum dala upp í 41,9 milljarða dala.
90% af rekstrarhagnaði félagsins kom í gegnum starfsemi í Norður-Ameríku, þar sem félagið hagnaðist um 3,9 milljarða dala að mestu leyti í gegnum sölu á vörubílum og jeppum. Þá áætlar félagið að hagnaður ársins verði á bilinu 9,6 til 11,2 milljarðar dala.