Hluta­bréfa­verð Al­vot­ech hefur hækkað um rúmt 1% í fyrstu við­skiptum í morgun en gengi félagsins hefur lækkað sam­fellt átta við­skipta­daga í röð.

Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá í gær hafði gengi Al­vot­ech lækkað um 26% í júnímánuði.

Félagið lauk í byrjun júní tæp­lega 10 milljarða hluta­fjárút­boði á genginu 1.320 krónum en gengið stendur í 1.085 krónum á hlut þegar þetta er skrifað.

Skort­staða í hluta­bréfum líftækni­lyfja­fyrir­tækisins Al­vot­ech jókst veru­lega á síðustu tveimur vikunum í maí, sam­kvæmt upp­lýsingum frá Nas­daq. Í byrjun maí stóð fjöldi skort­seldra hluta í um 884 þúsund, en var kominn í rúm­lega 1,55 milljón hluti þann 30. maí. Slíkt um­fang hefur ekki mælst meira frá skráningu félagsins sam­kvæmt gögnum Nas­daq.

Af­koma Al­vot­ech í árs­hluta­upp­gjöri í byrjun maí var vel um­fram væntingar markaðarins og greiddi félagið frá nýjum tekjuáætlunum fyrir árið 2025. Upp­gjörið leiddi til mikillar hækkunar á gengi bréfa.

Fjár­festar sem höfðu áður veðjað gegn félaginu urðu í kjölfarið fyrir veru­legu tapi og margir þeirra voru neyddir til að loka skort­stöðum sínum, sem ýtti enn frekar undir hækkunina.