Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% í 8,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Mesta veltan var með hlutabréf Alvotech eða um 3,1 milljarður króna en gengi líftæknifélagsins féll um 6,3%.

Lækkunina má einkum rekja til tæplega 10 milljarða króna hlutafjárútboðs sem Alvotech efndi til í gær og tilkynnti um eftir lokun Kauphallarinnar í gær.

Félagið tilkynnti í gærkvöldi um að það hefði selt 7,5 milljónir hluta á genginu 1.320,83 krónur en til samanburðar var dagslokagengi Alvotech í gær 1.440 krónur. Útgáfugengið var því 8,3% undir dagslokagengi Alvotech í gær. Gengi Alvotech stóð í 1.350 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar í dag.

Af ofangreindri 3,1 milljarðs veltu með bréf Alvotech á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag voru 2,2 milljarðar vegna uppgjörs viðskipta í hlutafjárútboðinu.

Næst mesta veltan, eða 2,6 milljarðar króna, var með hlutabréf Íslandsbanka sem hækkuðu um 0,9% í 417 viðskiptum. Gengi Íslandsbanka stendur nú í 119,0 krónum og er um 11,7% yfir útboðsgengi í nýlegu útboði ríkisins.

Þrjú félög aðalmarkaðarins hækkuð um tvö prósent eða meira í viðskiptum dagsins; Hampiðjan, Síminn og Oculis.

Hlutabréfaverð Hampiðjunnar hækkaði mest eða um 3,1% í 87 milljóna veltu. Gengi Hampiðjunnar stendur nú í 117,5 krónum á hlut og hefur hækkað um 9,8% frá því að félagið birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung á miðvikudaginn í síðustu viku.