Hluta­bréfa­verð málm­leitarfélagsins Amaroq Minerals leiddi hækkanir á aðal­markaði í dag er gengi félagsins fór upp um 2% í 374 milljóna veltu.

Dagsloka­gengi Amaroq var 192 krónur en gengið fór í sitt hæsta gildi um miðjan janúar­mánuð þegar dagsloka­gengið var 209 krónur.

Hluta­bréfa­verð Ocu­lis hækkaði einnig í við­skiptum dagsins og lokaði í 3.100 krónum eftir rúma 1% hækkun í 342 milljóna við­skiptum. Gengi Ocu­lis hefur hækkað um 30% það sem af er ári.

Gengi Icelandair hækkaði sömu­leiðis um 1% í 210 milljón króna við­skiptum og var dagsloka­gengi flug­félagsins 1,44 krónur á hlut.

Hluta­bréfa­verð Iceland Sea­food International leiddi lækkanir er gengið fór niður um tæp 2% í ör­við­skiptum. Gengi Hampiðjunnar lækkaði um rúmt 1% í 112 milljón króna við­skiptum.

Úr­vals­vísi­talan hækkaði um 0,08% og lokaði í 2.911,61 stigum. Heildar­velta á markaði nam 4,9 milljörðum króna.