Gengi bréfa Sýnar hefur rokið upp það sem af er degi, hækkað um 14,41% í 41 milljón króna viðskiptum. Hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað um tæplega 21% það sem af er vikunni.

Dagslokagengið stóð í 22,4 krónum á hlut fyrir helgi en stendur í 27 krónum sem stendur.

Viðskiptablaðið greindi frá því í gær að tilkynnt hefði verið um viðskipti með 22,5 milljón hluti í Sýn á genginu 22,4 krónur, sem samsvarar um 504 milljónum króna. Hlutabréfaverð félagsins hækkaði um 3,6% í örviðskiptum í kjölfarið og fór upp í 23 krónur á hlut.

Samkvæmt flöggunartilkynningu til Kauphallarinnar seldi Lífeyrissjóður verzlunarmanna rúmlega 14 milljón hluti í félaginu í gær, sem nemur öllum hlutum sjóðsins í Sýn. Enn hefur ekki verið til­kynnt hver var á kaup­hliðinni í sölu LIVE en ljóst er að líf­eyris­sjóðurinn fellur út af lista yfir 20 stærstu hlut­hafa félagsins.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,45% það sem af er degi og nema heildarviðskipti á aðalmarkaði í dag 1,8 milljörðum króna. Mestu viðskiptin eru með bréf Kviku banka, Amaroq og Íslandsbanka.

Gengi bréfa Oculis hefur þá hækkað um 3,28% það sem af er degi, í tæplega 80 milljóna króna viðskiptum.

Félagið birti ársuppgjör eftir lokun markaða í gær. Þar kom meðal annars fram að félagið væri fullfjármagnað til ársins 2028.