Hluta­bréfa­verð Icelandair hefur hækkað um rúm­ 9% síðast­liðinn mánuð en dagsloka­gengi fé­lagsins náði þó ekki yfir eina krónu eftir við­skipti dagsins. Gengi fór undir eina krónu í lok maí­mánaðar og hefur lækkað um tæp 30% það sem af er ári.

Gengi flug­fé­lagsins hækkaði um rúm 3% í um 297 milljón króna veltu í dag.

Hlutabréf í Play hækkuðu annan viðskiptadaginn í röð en gengi flugfélagsins fór upp um rúmt 1% í viðskiptum dagsins.

Þrátt fyrir um 5% lækkun síðustu tvo viðskiptadaga hefur gengi flugfélagsins hefur lækkað um rúm 8% síðastliðinn mánuð. Hlutabréfaverð Play er um 77% lægra en í upphafi árs.

Gengi flugfélaganna tveggja hefur tekið örlítið við sér síðustu daga en olíuverð hefur verið að lækka verulega að undanförnu.

Verðið á Brent-hrá­olíu, sem er meðal annars notuð í elds­neyti, hefur lækkað um 7% síðustu fimm daga og um 10% síðast­liðinn mánuð. Sam­kvæmt fram­virkum samningum er verðið á tunnunni í kringum 72 dali um þessar mundir.

Hluta­bréfa­verð fast­eigna­fé­lagsins Heima hækkaði þriðja við­skipta­daginn í röð er gengið fór upp um 2,5%.

Hluta­bréf fast­eigna­fé­lagsins hafa nú hækkað um rúm 17% síðast­liðinn mánuð en er­lendir sjóðir hafa meðal annars verið að kaupa bréf í fé­laginu.

Gengi málm­leitar­fé­lagsins Amaroq leiddi lækkanir er hluta­bréfa­verð fé­lagsins fór niður um 4% í 161 milljóna við­skiptum. Dagsloka­gengi Amaroq var 102 krónur en það stóð hæst í 150,5 krónum um miðjan mars.

Úr­vals­vísi­talan OMXI15 hækkaði um 0,3% og var heildar­velta í Kaup­höllinni 4,2 milljarðar.