Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði um rúm 3% í 833 milljón króna viðskiptum í dag. Dagslokagengi flugfélagsins var 1,39 krónur sem er um 5% lægra en í ársbyrjun.
Flugfélagið birti ársuppgjör eftir lokun markaða í gær sem sýndi fram á 20,2 milljóna dala tap á árinu, sem samsvarar um 2,8 milljarða króna tapi. Til samanburðar hagnaðist flugfélagið um 1,5 milljarða árið 2023.
Tekjur félagsins í fyrra námu 1.570 milljónum dala eða um 216 milljörðum króna, samanborið við 210 milljarða árið 2023.
Í uppgjörstilkynningu sagði Icelandair að heildartekjur á fjórða ársfjórðungi hafi þó aukist um 10% frá sama tímabili í fyrra og numið 48 milljörðum króna.
Þá hafi EBIT-afkoma á fjórðungnum batnað um 2,5 milljarða króna, en EBIT á tímabilinu var neikvætt um 4,4 milljarða króna.
Á fjárfestakynningu í morgun sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, að betra jafnvægi væri að komast á markaðinn til og frá Íslandi sem endurspeglaðist í sterkari bókunarstöðu félagsins en á sama tíma í fyrra.
Hann sagði jafnframt að önnur flugfélög séu að draga úr framboði á markaðnum.
JBT Marel, Oculis og Alvotech hækka
Hlutabréfaverð JBT Marel leiddi hækkanir á aðalmarkaði er gengi félagsins fór upp um tæplega 4% í 226 milljón króna veltu. Dagslokagengið var 18.700 krónur.
Hlutabréfaverð augnlyfjafyrirtækisins Oculis hækkaði einnig um tæp 4% í viðskiptum dagsins og var dagslokagengið 3.260 krónur. Um 423 milljón króna velta var með bréf félagsins.
Gengi Oculis leiðir hækkanir á aðalmarkaði það sem af er af árinu en hlutabréf í félaginu hafa hækkað um 36% frá ársbyrjun.
Gengi Alvotech fór upp um 2% í 1,9 milljarða króna viðskiptum. Dagslokagengi Alvotech var 1.800 krónur.
Úrvalsvísitalan OMXI 15 hækkaði um 1,37% og var heildarvelta á markaði 7,9 milljarðar króna.