Hlutabréfaverð Icelandair hefur hækkað um meira en 4% í tæplega 250 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag.

Gengi Icelandair stendur í 1,10 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð og hefur ekki verið hærra frá því í lok mars síðastliðnum, eða áður en markaðir tóku dýfu eftir tilkynningu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um umfangsmikla tolla í byrjun apríl.

Hækkunin kemur í aðdraganda birtingar flutningstalna hjá flugfélaginu fyrir maímánuð. Þá tilkynnti Icelandair í gær um samstarfssamning við indverska flugfélagið Air India um sammerkt flug.