Hluta­bréfa­verð JBT Marel hækkaði um tæp 8% í 135 milljón króna við­skiptum í kaup­höllinni í dag. Dagsloka­gengi félagsins var 15.100 krónur.

Gengi Síldar­vinnslunnar hækkaði um rúm 3% í 123 milljón króna við­skiptum og lokaði í 84 krónum á hlut. Hluta­bréfa­verð Ís­félagsins hækkaði um rúm 2% í 157 milljón króna við­skiptum. Dagsloka­gengi Ís­félagsins nam 132 krónum á hlut.

Hluta­bréfa­verð Icelandair lokaði í 1,13 krónum eftir rúm 2% hækkun í við­skiptum dagsins. Dagsloka­gengi flug­félagsins hefur ekki verið hærra síðan í apríl.

Mesta veltan var með bréf Ís­lands­banka en gengi bankans hækkaði um tæpt 1% í milljarðs króna við­skiptum. Dagsloka­gengi Ís­lands­banka var 118 krónur á hlut.

Gengi Amaroq lækkaði um 3,5% í 267 milljón króna við­skiptum. Hluta­bréfa­verð félagsins stóð í 149,5 krónum við lokun markaða.

Úr­vals­vísi­talan hækkaði um 1,63% í við­skiptum dagsins og lokaði í 2.719,96 stigum. Heildar­velta á markaði nam 4,5 milljörðum króna.