Hluta­bréfa­verð fast­eignafélagsins Kaldalóns lækkaði um rúm 5% í 217 milljón króna við­skiptum í dag.

Gengi félagsins hefur nú lækkað um 13,5% síðastliðinn mánuð. Dagsloka­gengið var 22,2 krónur en stóð í 25,2 krónum í byrjun júnímánaðar.

Hluta­bréfa­verð Símans lækkaði um 4,5% í 13 milljón króna við­skiptum og var dagsloka­gengi fjar­skipta­félagsins 12,8 krónur.

Gengi Símans hefur ekki verið lægra síðan í nóvember í fyrra eftir um 8% lækkun síðastliðinn mánuð.

Hluta­bréfa­verð Sjóvá lækkaði um tæp 4% í við­skiptum dagsins og lokaði í 45,4 krónum á hlut.

Gengi tryggingafélagsins hefur lækkað um 7% síðastliðinn mánuð en þó hækkað um 30% síðastliðið ár.

Viðsnúningur varð á gengi Al­vot­ech í dag er hluta­bréfa­verð félagsins fór upp um 2,8% í 256 milljón króna veltu.

Hluta­bréfa­verð Al­vot­ech hefur lækkað síðustu átta við­skipta­daga en gengið tók við sér í morgun.

Dagsloka­gengi Al­vot­ech var 1.100 krónur.

Gengi JBT Marel hækkaði einnig í við­skiptum dagsins. Dagsloka­gengi félagsins var 14.700 krónur á hlut eftir um 2% hækkun í 96 milljón króna við­skiptum.

Úr­vals­vísi­talan OMXI 15 lækkaði um 0,83% og var heildar­velta á markaði 4 milljarðar.