Hlutabréfaverð Nova hefur hækkað um 6,6% í morgun í 177 milljón króna viðskiptum.
Rétt fyrir tíu í morgun fóru í gegn viðskipti með um 20 milljón hluti á genginu 4,86 krónur á hlut. Samsvarar það um 97 milljón króna viðskiptum en um er að ræða um 0,5% hlut í fjarskiptafyrirtækinu.
Gengi Nova stendur í 5 krónum þegar þetta er skrifað en verði það raunin við lokun Kauphallarinnar væri það hæsta gengi Nova frá skráningu.
Nova var skráð á aðalmarkað kauphallarinnar í júní 2022 og var útboðsgengið í tengslum við skráninguna var 5,11 krónur á hlut en gengi Nova hefur aldrei farið yfir útboðsgengið.
Nova birti árshlutauppgjör fyrir tæpum mánuði síðan þar sem greint var frá því að Margrét Tryggvadóttir, sem hefur verið forstjóri Nova frá árinu 2018, mun láta af störfum 1. desember.
Hagnaður Nova á fyrsta ársfjórðungi nam 167 milljónum króna og jókst um fjórðung milli ára.